Algengar spurningar

Hvers vegna Elena?

Elena varð til út frá þeirri trú að engin fjölskylda ætti að standa ein þegar á reynir og að góðir hlutir eigi skilið fleiri en eitt líf.

Hvernig kem ég gjöfum til ykkar?

Elena er enn í uppbyggingu því ekki með opinberan afhendingar stað en hægt er að hafa sambandi við okkur og fá heimilisfang eða óskað eftir að við sækjum gjafir á höfuðborgarsvæðinu

Hverju takið þið við?

Við tökum við flestum hlutum sem geta nýst börnum og fjölskyldum þeirra, svo sem fatnaði, skóm, leikföngum, bókum, teppum og barnabúnaði. Hver hlutur er metinn við móttöku. fatnaður og búnaður fara í gegnum yfirferð áður en þeir fara áfram til nýrra eigenda. Ef þú ert óviss má alltaf hafa samband við okkur.

Hvað gerist við hluti sem ekki nýtast

við reynum eftir fremsta megni að koma öllum hlutum áfram í notkun með endurnýtingu. við vinnum þó með öðrum samtökum þegar það á við. ef flík eða hlutur er of illa farin fer hann í við eigandi endurvinnslu

Hver getur fengið aðstoð?

Elena leitast við að aðstoða fjölskyldur með börn sem þurfa á stuðningi að halda. Hvert erindi er metið fyrir sig samkvæmt úthlutunarreglum Elenu. Aðstoð frá Elenu er veitt án endurgjalds

Hvernig get ég stutt Elenu?

Þar sem Elena er enn ný og í mótun erum við ekki komin með eigin bankareikning. Þú getur þó stutt okkur með því að deila starfseminni, vekja athygli á henni eða gefa barnafatnað, leikföng, bækur og annan barnabúnað