Saga Elenu

Samtökin hennar Elenu voru stofnuð í minningu Elenu k. Eftir hana varð eftir barnafatnaður og barnabúnaður sem hefði annars farið til sölu eða geymslu. Í stað þess var ákveðið að gefa hlutina áfram til fjölskyldna sem þurftu á þeim að halda.

Stofnandi Elenu, hefur einnig sjálf reynslu af því að vera ung móðir með lítið milli handanna. Nítján ára gömul reiddi hún sig á stuðning annarra og gefins fatnað til að undirbúa komu barns síns. Sú reynsla, ásamt minningu Elenu, varð grunnurinn að samtökunum.

Markmið Elenu er að tryggja að ekkert barn hefji líf sitt í skorti og að fjölskyldur geti fengið stuðning þegar mest á reynir.